Vala í VS Code

Vala.Nú í VS Code.

Tengdu GitHub Copilot í Visual Studio Code við Business Central og spurðu á mannamáli. Vala sækir svörin beint úr ykkar eigin gögnum, rannsakar færslur og uppsetningu og skilar niðurstöðum sem þú getur treyst.

Eitt plugin með bæði tengingunni og sérþekkingunni. Engin lykilorð til að slá inn og engir útflutningar í Excel.

GitHub Copilot í VS Code býr til sölugreiningu fyrir viðskiptavini úr Business Central með Völu

Vala AI fjölskyldan

Það sem þú færð með Völu í VS Code

Vala gefur GitHub Copilot örugga leið inn í Business Central, bæði til að lesa gögn og skrá þau, ásamt sérþekkingu á því hvernig gögnin eru byggð upp. Útkoman er hraðari og áreiðanlegri svör, beint í ritlinum sem þú vinnur í.

01

Eitt plugin, allt innifalið

Ein zip-skrá inniheldur bæði Vala MCP tenginguna og Vala Skills. Þú setur hana upp einu sinni, tengist og þá er allt klárt.

02

Svör úr ykkar eigin gögnum

Copilot spyr Business Central beint, til dæmis um viðskiptamenn, birgja, vörur, bókhald og skjöl, í stað þess að giska eða gefa almenn svör.

03

Réttar tölur, ekki ágiskanir

Vala Skills kenna Copilot á Business Central: að nota reiknuð svæði (FlowFields), lesa formerki í fjárhag rétt og telja yfir allt gagnasafnið, ekki bara fyrstu línurnar.

Almennir eiginleikar Völu og öryggi eru á forsíðu Völu.

Skref 1 af 4

Öryggið fyrst

Áður en þú tengir GitHub Copilot við Business Central skaltu vita hvernig gögnin þín eru varin og hvar ábyrgðin liggur. Fyrir okkur hjá Rue de Net skiptir öllu máli að öryggið sé í lagi, og Vala er hönnuð með það að leiðarljósi.

Almennar öryggisreglur Völu, sem gilda um allar útgáfur, eru á forsíðu Völu. Hér er farið yfir það sem á sérstaklega við um VS Code. Í VS Code biður Copilot auk þess um leyfi áður en hann les skrár utan vinnusvæðisins eða kallar á tól, nema þú hafir leyft það áður.

Frá Business Central til VS Code

Á ábyrgð Völu og Business Central

Leiðin frá Business Central til VS Code er varin eins og lýst er á forsíðu Völu. Vala tryggir að þú sjáir aðeins það sem heimildasettin þín í Business Central leyfa, og að hún skrifi aðeins í þá hluta Business Central sem kerfisstjórinn ykkar hefur opnað fyrir henni.

Þegar gögnin eru komin til Copilot

Á ábyrgð GitHub Copilot leyfisins og GitHub

Svörin sem Vala sækir verða hluti af samtalinu við GitHub Copilot og eru send gervigreindarlíkaninu sem þú velur í VS Code. Hvernig farið er með þau þar, hve lengi þau eru geymd og hvort þau eru notuð á einhvern hátt fer eftir GitHub Copilot leyfinu sem þú notar og skilmálum GitHub.

  • Einstaklingsleyfi (t.d. Copilot Free og Pro): athugaðu stillingarnar undir Copilot settings á GitHub.
  • Fyrirtækjaleyfi (Copilot Business og Enterprise): kerfisstjóri ræður stillingum og hvaða líkön eru leyfð, og samningar ykkar við GitHub gilda.

Sjá nánar persónuverndarstefnu GitHub.

Samþykki kerfisstjóra

Kerfisstjóri samþykkir Völu fyrir VS Code

Vala er forrit sem er skráð í Microsoft Entra ID. Microsoft leyfir engu utanaðkomandi forriti að sækja gögn fyrirtækisins nema kerfisstjóri hafi samþykkt það fyrst. Þannig ákveður fyrirtækið sjálft hvaða kerfi mega tengjast gögnunum ykkar.

Samþykkið veitir Völu leyfi til að lesa og skrá Business Central gögn fyrir hönd innskráðs notanda, og aldrei umfram heimildir hans.

Án samþykkisins gengur þetta ekki. Notandinn kemst þá ekki í gegnum innskráninguna í skrefi 3.

Samþykkið má afturkalla hvenær sem er í Microsoft Entra admin center, undir Enterprise applications.

  • Slóð fyrir samþykki
    https://login.microsoftonline.com/<customer-tenant>/adminconsent?client_id=c14af58e-6623-4c35-93ad-7bd53399aee9Opna

Settu öryggið á oddinn

Áður en þú heldur áfram

Við hvetjum þig til að kanna þessi mál vel áður en þú tengir GitHub Copilot við Business Central:

  • Hvaða GitHub Copilot leyfi notar þú, hvaða gervigreindarlíkön eru leyfð, og hvað segja skilmálar GitHub um geymslu og notkun gagna?
  • Eru heimildasettin í Business Central rétt? Vala sér nákvæmlega það sem notandinn sér, hvorki meira né minna.
  • Hver hjá ykkur samþykkir Völu og ber ábyrgð á aðgangi að henni?
  • Vita öryggisstjóri og persónuverndarfulltrúi af notkuninni og eru þeir sáttir við hana?

Ef spurningar vakna erum við til staðar. Hafðu samband og við förum yfir öryggismálin með þér og kerfisstjóranum ykkar.

Skref 2 af 4

Settu Vala plugin upp í VS Code

Hér afþjappar þú Vala plugin og setur það upp í VS Code. Í því eru bæði Vala MCP tengingin og Vala Skills, svo ekkert þarf að setja upp sérstaklega.

Það sem þú þarft

Áður en þú byrjar

Uppsetningin tekur um fimm mínútur og þarf aðeins að gera einu sinni.

Appið Rue de Net Vala AI þarf að vera sett upp í því Business Central umhverfi sem þú ætlar að tala við. Án þess virkar Vala plugin ekki. Leiðbeiningar eru í uppsetningu Völu í BC.

Kerfisstjóri fyrirtækisins þarf að samþykkja Völu fyrir allt fyrirtækið (consent), sjá skref 1.

Hver notandi þarf að vera Business Central notandi með aðgang að gögnunum sem spurt er um.

  • VS Code og GitHub Copilot
    Nýleg útgáfa af Visual Studio Code með GitHub Copilot og agent plugins virk
  • App í Business Central
    Rue de Net Vala AI, sett upp í BC-umhverfinuLeiðbeiningar
  • Vala plugin
    vala-vscode-plugin.zipSækja
  • Vala MCP slóð (til upplýsingar)
    https://api-dev.ruedenet.net/aiconsultantmcp/mcp
  • Innskráning
    Microsoft Entra ID, með sama vinnureikningi og í Business Central
1

Opnaðu VS Code

Opnaðu Visual Studio Code og gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn í GitHub Copilot. Chat-glugginn er hægra megin.

Upphafssíða VS Code með Chat-glugganum
2

Sæktu plugin-skrána

Sæktu vala-vscode-plugin.zip og settu hana í möppu sem þú ætlar að halda, til dæmis C:\Tools\Vala.

VS Code les pluginið úr möppunni, svo ekki eyða henni eftir uppsetningu.

vala-vscode-plugin.zip í möppu
3

Afþjappaðu skrána

Hægrismelltu á zip-skrána og veldu Extract All....

Extract All í valmynd Windows
4

Mappan með pluginu

Til verður mappan vala-vscode-plugin með möppunni skills og skránum .mcp.json, plugin.json og README.md.

Afritaðu slóðina á þessa möppu, til dæmis C:\Tools\Vala\vala-vscode-plugin. Þú þarft hana í skrefi 7.

Innihald möppunnar vala-vscode-plugin
5

Kveiktu á agent plugins

Opnaðu stillingarnar með Ctrl+, og leitaðu að:

chat.plugins.enabled

Hakaðu við Chat › Plugins: Enabled.

Stillingin Chat Plugins Enabled í VS Code
6

Install Plugin from Source

Opnaðu skipanaspjaldið (Command Palette) með Ctrl+Shift+P og veldu:

Chat: Install Plugin from Source
Chat: Install Plugin from Source í Command Palette
7

Sláðu inn slóðina á möppuna

Límdu slóðina á möppuna úr skrefi 4, þá sem inniheldur plugin.json, eða veldu hana með möppu-tákninu. Ýttu svo á Enter.

Veldu möppuna sjálfa, ekki zip-skrána.

Install Plugin from Source með slóð á vala-vscode-plugin möppuna

Skref 3 af 4

Tengdu Völu við Business Central

Vala MCP er tengingin sem sækir gögnin. Þú tengir hana einu sinni með Microsoft-vinnureikningnum þínum, um leið og þú spyrð fyrstu spurningarinnar.

1

Spurðu og smelltu á Authenticate

Opnaðu nýtt spjall í Copilot, í Agent ham, og spurðu til dæmis: „Hverjir eru 5 stærstu viðskiptavinirnir okkar?“

Copilot sýnir MCP authentication required fyrir MCP þjóninn vala. Smelltu á Authenticate.

Ef þú ert með fleiri MCP þjóna sem krefjast innskráningar birtast þeir líka þarna.

MCP authentication required og Authenticate hnappur
2

Leyfðu VS Code að opna innskráninguna

VS Code spyr hvort það megi opna innskráningarsíðu Völu. Smelltu á Open.

Do you want Code to open the external website?
3

Skráðu þig inn með Microsoft

Vafri opnast. Veldu vinnureikninginn þinn, sama reikning og þú notar í Business Central.

Ef beðið er um samþykki hefur kerfisstjóri ekki enn samþykkt Völu. Sjá skref 1.

Vala nær aðeins sambandi við Business Central umhverfi þar sem appið Rue de Net Vala AI er sett upp. Sjá Áður en þú byrjar.

Microsoft innskráning, veldu reikning
4

Aftur í VS Code

Þegar Sign-in successful! birtist spyr vafrinn hvort hann megi opna Visual Studio Code. Smelltu á Open og þá ferðu aftur í VS Code.

Sign-in successful og beiðni um að opna Visual Studio Code

Skref 4 af 4

Prófaðu Völu í VS Code

Copilot heldur nú áfram með spurninguna, les Vala Skills og spyr hvar gögnin eru.

1

Copilot spyr hvar gögnin eru

Áður en Copilot flýtur upp í Business Central spyr hann nokkurra spurninga, einnar í einu (1/5). Sú fyrsta er Tenant ID: settu inn tenant ID eða lén fyrirtækisins, til dæmis fyrirtaeki.onmicrosoft.com.

Svaraðu og farðu á næstu spurningu með örinni neðst.

Copilot spyr um tenant ID Business Central umhverfisins
2

Svaraðu spurningunum

Copilot spyr um það sem þarf til að svara spurningunni þinni, í þessu dæmi:

  • Tenant ID: tenant ID eða lén fyrirtækisins
  • Environment: umhverfið, til dæmis Production
  • Company name: fyrirtækið, eins og það heitir í Business Central
  • Period og Rank by: tímabil og hvað á að raða eftir

Svörin þín birtast í spjallinu og Copilot fer að sækja gögnin með Völu.

Ábending: Settu tenant, umhverfi og fyrirtæki strax í fyrstu spurninguna svo Copilot þurfi síður að spyrja:

tenant=<tenant ID>, environment=Production og company=<nafn fyrirtækis>
Svör við spurningum Copilot: tenant, umhverfi, fyrirtæki, tímabil og röðun
3

Svarið úr Business Central

Copilot kallar á Völu og skilar töflu yfir 5 stærstu viðskiptavinina, raðað eftir sölu, með númer, nafni og upphæð.

Haltu svo áfram í samtalinu, til dæmis: „Hverjir eru stærstu birgjarnir í ár?“

Copilot sýnir 5 stærstu viðskiptavinina í Business Central með Völu