Vala í BC · Gervigreindarráðgjafi fyrir Business Central
Vala.Spurðu bara.
Vala svarar spurningum um reksturinn á mannamáli, beint inni í Business Central. Hún rannsakar þín eigin gögn og uppsetningu og sýnir hvernig hún komst að niðurstöðunni.
Enginn útflutningur í Excel, engar sérsmíðaðar skýrslur og engin aukaleyfi fyrir utanaðkomandi gervigreind. Vala les öll gögn sem notandinn hefur aðgang að, skráir gögn þegar hann biður um það og fer alltaf eftir heimildum hans.

Vala AI fjölskyldan
Hvað er Vala í BC?
Ráðgjafi sem þekkir þitt Business Central
Vala er viðbót (extension) fyrir Business Central í skýinu. Notandinn opnar síðuna Vala í BC og spyr eins og hann myndi spyrja reyndan ráðgjafa. Vala flettir upp í töflum, uppsetningu og viðbótum, reiknar og útskýrir hvað hún fann.
Rannsakar, giskar ekki
Vala notar 14 sérhæfð rannsóknartól: fyrirspurnir í töflur, samtölur og flokkanir yfir allt gagnasafnið, nýjustu færslu í hverjum hópi, skema, lykla, síður, aðgerðir og hjálpargreinar viðbóta.
Þekkir uppsetninguna þína
Við uppsetningu býr Vala til lýsingu á umhverfinu út frá uppsettum viðbótum og hlutum þeirra. Hún skilur því líka sérlausnir og ISV-viðbætur, ekki bara staðlað BC.
Svör sem hægt er að sannreyna
Niðurstöður koma sem töflur með smellanlegum tenglum á færslur og síður í BC. Hægt er að sjá hvaða tól voru notuð og með hvaða síum, og afrita töflur eða sækja sem CSV eða Excel.
Virði fyrir viðskiptavininn
Hvað fær fyrirtækið út úr Völu?
Vala styttir leiðina frá spurningu að ákvörðun. Stjórnendur fá innsýn án þess að bíða eftir skýrslu og starfsfólk leysir vandamál án þess að senda þjónustubeiðni.
Svör á mínútum, ekki dögum
Spurningar sem áður kölluðu á útflutning, Excel-vinnu eða sérsmíðaða skýrslu fá svar strax, byggt á lifandi gögnum.
Færri þjónustubeiðnir
„Af hverju bókast þetta ekki?“ eða „Hvar er þessi uppsetning?“ Vala rannsakar uppsetninguna og útskýrir hvað stoppar ferlið.
Betri ákvarðanir
Framlegð eftir viðskiptavinum, áhættudreifing, hægseljandi birgðir og bundið fé. Innsýn sem annars týnist í gögnunum.
Öruggt fyrir alla notendur
Vala sér aðeins það sem notandinn hefur heimild til að sjá og skrifar aðeins í þá hluta BC sem kerfisstjórinn hefur opnað fyrir henni. Því er óhætt að opna hana fyrir breiðum hópi.
Á íslensku og ensku
Vala svarar á tungumáli notandans í BC og skiptir um tungumál ef spurt er á öðru. Viðbótin er með íslenskum þýðingum.
Rue de Net á bak við
Ef Vala kemst ekki alla leið getur notandinn sent málið beint til Rue de Net. Samtalið fylgir með, svo ráðgjafinn þarf ekki að byrja á núlli.
Dæmi um spurningar
Spurningarnar sem teymið spyr nú þegar
Dæmi um spurningar sem Vala ræður við. Þær þrír fyrstu hafa verið prófaðar í raunumhverfum viðskiptavina, bæði á íslensku og ensku.
Vala eða Copilot chat?
Hvers vegna Vala, þegar Copilot chat er komið í BC?
Microsoft kynnti nýtt Copilot chat í Business Central 29.0 á Directions 2026. Það er gott framtak og viðskiptavinir eiga að nota það. Vala er þó smíðuð fyrir annað hlutverk: að vera sérhæfður greinandi á BC-gögnum, ekki almennur aðstoðarmaður.
Almennur aðstoðarmaður í öllum Microsoft-lausnum
Sækir, dregur saman og útskýrir upplýsingar úr BC. Getur líka leitað á vefnum, borið saman viðhengi við gögn og samið texta. Með Microsoft 365 Copilot-leyfi bætist við samhengi úr tölvupósti, fundum og skjölum.
Sérhæfður greinandi á Business Central
Sérsmíðuð til að rannsaka BC: reikna samtölur yfir allt gagnasafnið, finna rót vandamála í uppsetningu, skilja sérlausnir og viðbætur og skila svörum sem hægt er að rekja og sannreyna. Rue de Net stillir hana og styður.
| Copilot chat í BC | Vala í BC | |
|---|---|---|
| Les BC-gögn með heimildum notanda | Já | JáHver notandi skráir sig inn og Vala sér aðeins það sem hann hefur aðgang að. |
| Skrifar gögn í BC | Ekki ennLes-aðgangur í dag. Microsoft hefur boðað að hægt verði að breyta gögnum. | JáNotandinn getur beðið Völu að skrá gögn, og kerfisstjórinn ræður í hvaða hluta BC hún má skrifa. |
| Samtölur og röðun yfir allt gagnasafnið | AlmenntTól til að finna, lýsa og sækja færslur. | SérhæftSérstök tól fyrir summu, fjölda, meðaltal, top-N og nýjustu færslu í hverjum hópi, með FlowFields og FlowFilters. |
| Rannsókn á uppsetningu og villum | Að hlutaFinnur síður og lýsir reitum. | JáSkoðar skema, lykla, síður, aðgerðir, uppsettar viðbætur og hluti þeirra, og hjálpargreinar viðbóta. |
| Þekking á sérlausnum og ISV-viðbótum | Að hlutaLes töflur viðbóta og listar uppsettar viðbætur. | JáBýr til lýsingu á umhverfinu út frá viðbótum og notar hana í hverju samtali. |
| Vistuð samtöl, vistaðar spurningar, Excel/CSV | — | JáSamtöl vistuð í BC, endurnýtanlegar spurningar, töflur í CSV/Excel og samtöl sótt sem Markdown eða JSON. |
| Beint til ráðgjafa | — | JáNotandi stofnar þjónustubeiðni hjá Rue de Net úr samtalinu og samtalið fylgir með. |
| Vefleit, viðhengi, textagerð, Microsoft 365 | JáSérstaklega með Microsoft 365 Copilot-leyfi. | NeiVala einbeitir sér að BC-gögnum og uppsetningu. |
| BC-útgáfa | 29.0 (preview). Gæti þurft að virkja. | BC í skýinu, útgáfa 28.0 eða nýrri. |
Upplýsingar um Copilot chat koma úr kynningum Microsoft á Directions 2026: „The new Copilot chat“, „Demystifying the new Copilot chat“ og „Edit data with the new Copilot chat“. Þær lýsa stöðunni í október 2026 og geta breyst.
Ekki annaðhvort, heldur hvort tveggja
Copilot chat hentar vel í almennar spurningar og vinnu þvert á Microsoft 365. Þegar spurningin er „af hverju?“, „hversu mikið?“ eða „hvað stoppar þetta?“ í BC, og svarið þarf að standast skoðun, þá er Vala rétta verkfærið.
Hvernig Vala vinnur
Traust og stjórn frá fyrsta degi
Vala keyrir inni í BC. Hver spurning fer í gegnum Vala-þjónustu Rue de Net í Azure, sem notar Azure OpenAI og tól Völu sem keyra í BC með auðkenni notandans.
Notandinn spyr á síðunni Vala í BC, á íslensku eða ensku.
Vala-þjónustan (Azure OpenAI) ákveður hvaða gögn þarf að skoða.
Tól Völu keyra í BC fyrir hönd notandans og innan hans heimilda.
Niðurstaða með töflum, tenglum á færslur og skýringu.
Heimildir notanda gilda
Vala notar innskráningu notandans (Microsoft Entra ID) og BC-heimildir hans. Hún sér ekkert sem notandinn sér ekki sjálfur.
Les og skrifar
Vala les öll gögn sem notandinn hefur aðgang að og skráir gögn í BC þegar hann biður um það. Kerfisstjórinn ræður í hvaða hluta BC Vala má skrifa.
Samtöl í ykkar BC
Samtöl og samantektir eru vistuð í BC-gagnagrunni viðskiptavinarins. Spurningar og niðurstöður fyrirspurna fara til Vala-þjónustunnar og Azure OpenAI til úrvinnslu.
Fyrsta skrefið
Öryggið fyrst
Áður en þú setur Völu upp í Business Central skaltu vita hvernig gögnin þín eru varin og hvar ábyrgðin liggur. Fyrir okkur hjá Rue de Net skiptir öllu máli að öryggið sé í lagi, og Vala er hönnuð með það að leiðarljósi.
Þú skráir þig inn með þínum eigin aðgangi
Innskráningin fer fram hjá Microsoft með sama vinnureikningi og þú notar í Business Central. Vala sér aldrei lykilorðið þitt.
Business Central ræður hvað þú sérð
Tól Völu keyra í Business Central í þínu nafni og Business Central athugar heimildasettin þín í hverri fyrirspurn. Þú getur aldrei nálgast önnur gögn en heimildasettin þín í BC leyfa.
Kerfisstjóri ræður hvar Vala skrifar
Þú getur beðið Völu að skrá gögn fyrir þig. Kerfisstjórinn ykkar ræður í hvaða hluta Business Central Vala má skrifa.
Dulkóðuð tenging
Öll samskipti milli Business Central, Vala-þjónustunnar og Azure OpenAI fara um dulkóðaða HTTPS-tengingu.
Kerfisstjóri samþykkir Völu
Vala virkar ekki í fyrirtækinu þínu fyrr en kerfisstjóri hefur samþykkt hana. Samþykkið má afturkalla hvenær sem er.
Þið stjórnið aðganginum
Aðeins notendur með heimildasettið Vala UI - User geta notað Völu, og kerfisstjórinn ykkar stýrir innskráningunni í Microsoft Entra ID.
Í Business Central
Á ábyrgð Völu og Business Central
Gögnin eru sótt í Business Central eins og lýst er hér að ofan. Vala tryggir að þú sjáir aðeins það sem heimildasettin þín í BC leyfa, og að hún skrifi aðeins í þá hluta BC sem kerfisstjórinn ykkar hefur opnað fyrir henni. Samtöl og samantektir eru vistuð í ykkar eigin BC-gagnagrunni.
Þegar spurningin er unnin
Á ábyrgð Rue de Net og Microsoft Azure
Til að svara eru spurningin og niðurstöður fyrirspurna sendar til Vala-þjónustu Rue de Net í Azure, sem notar Azure OpenAI. Gögnin fara ekki til utanaðkomandi gervigreindarþjónusta eins og ChatGPT eða Claude, og þið þurfið engin aukaleyfi fyrir gervigreind.
- Samkvæmt Microsoft eru spurningar og svör í Azure OpenAI ekki aðgengileg OpenAI og ekki notuð til að þjálfa gervigreindarlíkön.
- Ef notandi sendir þjónustubeiðni úr Völu fylgir samtalið málinu til Rue de Net.
Sjá nánar gögn, persónuvernd og öryggi í Azure OpenAI hjá Microsoft.
Samþykki kerfisstjóra
Kerfisstjóri samþykkir Völu fyrir BC
Vala er forrit sem er skráð í Microsoft Entra ID. Microsoft leyfir engu utanaðkomandi forriti að sækja gögn fyrirtækisins nema kerfisstjóri hafi samþykkt það fyrst. Þannig ákveður fyrirtækið sjálft hvaða kerfi mega tengjast gögnunum ykkar.
Samþykkið veitir Völu leyfi til að lesa og skrá Business Central gögn fyrir hönd innskráðs notanda, og aldrei umfram heimildir hans.
Án samþykkisins gengur þetta ekki. Notendur komast þá ekki í gegnum innskráninguna (Sign in & setup) í Völu.
Samþykkið má afturkalla hvenær sem er í Microsoft Entra admin center, undir Enterprise applications.
-
Slóð fyrir samþykki
https://login.microsoftonline.com/<customer-tenant>/adminconsent?client_id=5014276b-b367-45ab-ba72-f11078396bb5Opna
Settu öryggið á oddinn
Áður en þú heldur áfram
Við hvetjum þig til að kanna þessi mál vel áður en þú setur Völu upp:
- Hvar eru gögnin unnin og geymd, og samræmist það stefnu ykkar um persónuvernd og vinnslusamninga?
- Eru heimildasettin í Business Central rétt? Vala sér nákvæmlega það sem notandinn sér, hvorki meira né minna.
- Hver hjá ykkur samþykkir Völu og ákveður hverjir fá heimildasettið Vala UI - User?
- Vita öryggisstjóri og persónuverndarfulltrúi af notkuninni og eru þeir sáttir við hana?
Ef spurningar vakna erum við til staðar. Hafðu samband og við förum yfir öryggismálin með þér og kerfisstjóranum ykkar.
Hvað þarf til?
Forsendur fyrir Völu í BC
Til að setja Völu upp þarf stjórnanda í BC og stjórnanda í Microsoft Entra. Viðskiptavinur þarf ekki eigin Azure-áskrift eða Azure OpenAI-lykil.
- Business Central í skýinu (SaaS), útgáfa 28.0 eða nýrri. Vala styður ekki BC OnPrem.
- Appið Rue de Net Vala AI af AppSource (Microsoft Marketplace), sett upp í BC-umhverfinu.
- Stjórnandi í BC sem getur sett upp viðbót og úthlutað heimildasettum.
- Stjórnandi í Microsoft Entra ID með réttindi til að veita samþykki fyrir forrit (t.d. Global Administrator), til að veita samþykki fyrir alla stofnunina (admin consent).
- Notendur með Microsoft 365-aðgang sem skrá sig inn í BC með Entra ID.
Leiðbeiningar
Uppsetning skref fyrir skref
Setja upp Rue de Net Vala AI af AppSource
Farðu inn á Rue de Net Vala AI á AppSource (Microsoft Marketplace) og settu appið Rue de Net Vala AI upp í því BC-umhverfi sem á að nota það. Meira þarf ekki til að koma Völu inn í Business Central.
- Opnaðu slóðina og veldu Get it now.
- Skráðu þig inn með vinnureikningnum og veldu BC-umhverfið, fyrst sandkassa (sandbox) ef þið viljið prófa áður en farið er í raunumhverfið.
- Ljúktu uppsetningunni í Business Central.
Opna Rue de Net Vala AI á AppSource ↗
- Heiti: Rue de Net Vala AI, útgefandi Rue de Net
- App ID:
5a54e8e6-5e31-4cb5-8164-426a6df2fbe7
Appið er líka forsenda fyrir Völu í ChatGPT, Claude, Copilot og VS Code. Þær útgáfur virka aðeins við Business Central umhverfi þar sem Rue de Net Vala AI hefur verið sett upp.
Við uppsetningu sækir appið sjálft tengistillingar Vala-þjónustunnar. Ekki þarf að slá inn slóðir eða lykla handvirkt.
Úthluta heimildasettum
Úthlutaðu heimildasetti á notendur eða notendahópa í BC:
- Vala UI - User: fyrir alla sem eiga að spjalla við Völu.
- Vala UI - Admin: fyrir þá sem sjá um uppsetningu og stillingar.
Heimildasett Völu veita aðeins aðgang að Völu sjálfri. Hvaða gögn notandinn sér ræðst áfram af hans venjulegu BC-heimildum.
Veita samþykki fyrir stofnunina (admin consent)
Opnaðu stillingasíðuna Vala Setup sem stjórnandi og veldu aðgerðina Consent for M365 Tenant. Skráðu þig inn sem Entra-stjórnandi og samþykktu heimildirnar.
Samþykkið leyfir Völu að kalla á BC fyrir hönd innskráðs notanda. Það gildir fyrir allan tenantinn.
Einnig má slá inn tenant ID eða lén fyrirtækisins hér og opna samþykkisslóðina beint:
https://login.microsoftonline.com/<customer-tenant>/adminconsent?client_id=5014276b-b367-45ab-ba72-f11078396bb5OpnaOpna Völu og skrá sig inn
Leitaðu að Vala í BC (Alt+Q) og opnaðu síðuna. Veldu Sign in & setup og skráðu þig inn með Microsoft 365-aðganginum. Vala sækir þá agentana sem í boði eru og býr til lýsingu á umhverfinu.
Þegar þessu er lokið er hægt að spyrja fyrstu spurningarinnar.
Prófa með eigin spurningum
Byrjaðu á spurningum sem teymið spyr nú þegar og berðu svörin saman við það sem þið vitið. Vistaðu góðar spurningar svo aðrir geti endurnýtt þær.
Svör Völu eru unnin af gervigreind og geta verið röng. Sannreynið mikilvægar tölur í BC áður en ákvarðanir eru teknar út frá þeim.
Fyrir BC-stjórnandann
| Síða notenda | Vala (leitað í BC) |
| Stillingasíða | Vala Setup, aðeins fyrir stjórnendur |
| Heimildasett | Vala UI - User, Vala UI - Admin |
| Tengistillingar | API Base URL, API Scope og Entra Client ID. Sótt sjálfkrafa. |
| Birta tól og notkun | Show Tools And Resources, sjálfgefið slökkt |
Ef eitthvað gengur ekki
| „Sign in“ tekst ekki | Athugaðu hvort admin consent hafi verið veitt fyrir tenantinn (sjá samþykki kerfisstjóra). |
| Notandi sér ekki Völu | Athugaðu hvort hann sé með heimildasettið Vala UI - User. |
| Rangt eða ófullnægjandi svar | Gefðu svarinu einkunn og sendu þjónustubeiðni úr samtalinu. Rue de Net fær samtalið með. |
Algengar spurningar
Spurt og svarað
Þarf ég Microsoft 365 Copilot-leyfi til að nota Völu?
Nei. Vala keyrir sem viðbót í BC og þarf ekki leyfi fyrir Copilot, ChatGPT, Claude eða aðrar utanaðkomandi gervigreindarlausnir. Notendur skrá sig inn með sínum venjulega Microsoft 365-aðgangi.
Getur Vala skráð gögn í BC?
Já. Þú getur beðið Völu að skrá gögn fyrir þig, og hún gerir það í þínu nafni og innan þinna heimilda. Kerfisstjórinn ykkar ræður í hvaða hluta BC Vala má skrifa.
Sér Vala öll gögn fyrirtækisins?
Nei. Vala keyrir fyrir hönd innskráðs notanda og sér aðeins þau fyrirtæki og gögn sem hann hefur heimild til að sjá í BC.
Hvert fara gögnin?
Samtöl eru vistuð í BC-gagnagrunni ykkar. Til að svara eru spurningin og niðurstöður fyrirspurna sendar til Vala-þjónustu Rue de Net í Azure og til Azure OpenAI. Ef notandi stofnar þjónustubeiðni fylgir samtalið málinu til Rue de Net.
Virkar Vala á BC OnPrem?
Ekki í dag. Vala í BC krefst Business Central í skýinu, útgáfu 28.0 eða nýrri. Fyrir viðskiptavini á OnPrem gæti Vala í Claude hentað síðar.
Get ég notað Völu og Copilot chat saman?
Já. Þau keppa ekki um sama hlutverkið. Copilot chat hentar í almenn verkefni þvert á Microsoft 365, og Vala í dýpri greiningu og rannsóknir á BC.