Svör úr þínum eigin gögnum
Claude spyr Business Central beint, til dæmis um viðskiptamenn, birgja, vörur, bókhald og skjöl, í stað þess að giska eða gefa almenn svör.
Vala í Claude
Tengdu Claude við Business Central og spurðu á mannamáli. Vala sækir svörin beint úr þínum eigin gögnum, rannsakar færslur og uppsetningu og skilar niðurstöðum sem þú getur treyst.
Engir útflutningar í Excel, engar sérsmíðaðar skýrslur. Spurðu, greindu og búðu til mælaborð með þínum Business Central gögnum, beint í Claude.

Vala gefur Claude örugga leið inn í Business Central, bæði til að lesa gögn og skrá þau, ásamt sérþekkingu á því hvernig gögnin eru byggð upp. Útkoman er hraðari og áreiðanlegri svör.
Claude spyr Business Central beint, til dæmis um viðskiptamenn, birgja, vörur, bókhald og skjöl, í stað þess að giska eða gefa almenn svör.
Vala Skills kenna Claude á Business Central: að nota reiknuð svæði (FlowFields), lesa formerki í fjárhag rétt og telja yfir allt gagnasafnið, ekki bara fyrstu línurnar.
Láttu Claude búa til gagnvirk mælaborð, gröf og samantektir úr Business Central gögnunum, beint í samtalinu.
Almennir eiginleikar Völu og öryggi eru á forsíðu Völu.
Skref 1 af 4
Áður en þú tengir Claude við Business Central skaltu vita hvernig gögnin þín eru varin og hvar ábyrgðin liggur. Fyrir okkur hjá Rue de Net skiptir öllu máli að öryggið sé í lagi, og Vala er hönnuð með það að leiðarljósi.
Almennar öryggisreglur Völu, sem gilda um allar útgáfur, eru á forsíðu Völu. Hér er farið yfir það sem á sérstaklega við um Claude.
Frá Business Central til Claude
Leiðin frá Business Central til Claude er varin eins og lýst er á forsíðu Völu. Vala tryggir að þú sjáir aðeins það sem heimildasettin þín í Business Central leyfa, og að hún skrifi aðeins í þá hluta Business Central sem kerfisstjórinn ykkar hefur opnað fyrir henni.
Þegar gögnin eru komin til Claude
Svörin sem Vala sækir verða hluti af samtalinu í Claude. Hvernig farið er með þau þar, hve lengi þau eru geymd og hvort þau eru notuð á einhvern hátt, til dæmis til að þjálfa gervigreindarlíkön, fer eftir Claude leyfinu sem þú notar og reglum Anthropic.
Sjá líka persónuverndarstefnu Anthropic.
Samþykki kerfisstjóra
Vala er forrit sem er skráð í Microsoft Entra ID. Microsoft leyfir engu utanaðkomandi forriti að sækja gögn fyrirtækisins nema kerfisstjóri hafi samþykkt það fyrst. Þannig ákveður fyrirtækið sjálft hvaða kerfi mega tengjast gögnunum ykkar.
Samþykkið veitir Völu leyfi til að lesa og skrá Business Central gögn fyrir hönd innskráðs notanda, og aldrei umfram heimildir hans.
Án samþykkisins gengur þetta ekki. Notandinn kemst þá ekki í gegnum innskráninguna í skrefi 3.
Samþykkið má afturkalla hvenær sem er í Microsoft Entra admin center, undir Enterprise applications.
https://login.microsoftonline.com/<customer-tenant>/adminconsent?client_id=1c2787ae-1ab1-48db-b792-07721a22431cOpnaSettu öryggið á oddinn
Við hvetjum þig til að kanna þessi mál vel áður en þú tengir Claude við Business Central:
Ef spurningar vakna erum við til staðar. Hafðu samband og við förum yfir öryggismálin með þér og kerfisstjóranum ykkar.
Skref 2 af 4
Hér hleðurðu Vala plugin upp í Claude Desktop. Í því eru bæði Vala MCP tengingin og Vala Skills, svo ekkert þarf að setja upp sérstaklega.
Það sem þú þarft
Uppsetningin tekur um fimm mínútur. Ekkert lykilorð eða client secret þarf, því Vala plugin sér um tenginguna.
Appið Rue de Net Vala AI þarf að vera sett upp í því Business Central umhverfi sem þú ætlar að tala við. Án þess virkar Vala plugin ekki. Leiðbeiningar eru í uppsetningu Völu í BC.
Kerfisstjóri fyrirtækisins þarf að samþykkja Völu fyrir allt fyrirtækið (consent), sjá skref 1.
Hver notandi þarf að vera Business Central notandi með aðgang að gögnunum sem spurt er um.
vala-claude-plugin.zipSækjahttps://api-dev.ruedenet.net/aiconsultantmcp/mcpSíðan Upload a plugin opnast. Hún tekur við plugin-skrám af gerðinni .zip og .plugin.

Dragðu vala-claude-plugin.zip inn á síðuna, eða smelltu á browse og veldu hana.
Aðeins zip-skráin er valin. Vala Skills eru þegar inni í henni.

Síða Völu opnast og sýnir hvað er í pluginu: connectorinn vala og fjögur Vala Skills, sem Claude notar sjálfkrafa þegar þú spyrð um Business Central:

Skref 3 af 4
Connectorinn vala er tengingin sem sækir gögnin. Þú tengir hann einu sinni með Microsoft-vinnureikningnum þínum.
Við connectorinn vala stendur Not connected. Smelltu á Connect (eða Finish setup efst).
Glugginn Add custom connector opnast með nafni og slóð þegar útfylltum. Smelltu á Continue.

Claude finnur sjálfur réttu stillingarnar og merkir þær Detected:
Engu þarf að breyta. Staðfestu neðst í glugganum til að halda áfram.
Ekkert client ID eða client secret þarf að slá inn.

Veldu vinnureikninginn þinn, sama reikning og þú notar í Business Central.
Ef beðið er um samþykki hefur kerfisstjóri ekki enn samþykkt Völu. Sjá skref 1.
Vala nær aðeins sambandi við Business Central umhverfi þar sem appið Rue de Net Vala AI er sett upp. Sjá Áður en þú byrjar.

Þegar Connected birtist spyr vafrinn hvort hann megi opna Claude. Smelltu á Open. Vafraflipanum má loka.

Opnaðu nýtt spjall og spurðu til dæmis: „Hverjir eru 5 stærstu viðskiptavinirnir og hvað má lesa úr því?“
Claude þarf að vita hvar gögnin eru. Fyrst þegar þú spyrð biður hann um tenant, umhverfi og fyrirtæki, nema þau séu þegar í Project instructions (sjá skref 4):
Tenant er <tenant ID>, umhverfið er Production og fyrirtækið er <nafn fyrirtækis>Claude kallar þá á Völu og skilar töflu yfir 5 stærstu viðskiptavinina, með sölu, framlegð, fjölda reikninga, ógreiddri stöðu og opnum pöntunum, ásamt stuttri greiningu.

Skref 4 af 4
Við biðjum Claude um söluyfirlit. Claude sækir gögnin með Völu og býr til gagnvirkt mælaborð.
Búðu til Project í Claude, til dæmis BC SaaS, og smelltu á Edit við Instructions. Settu þar inn tenant, umhverfi og fyrirtæki:
Tenant = <tenant ID>
Environment = Production
Company = <nafn fyrirtækis>Smelltu á Save instructions. Nú veit Claude hvar gögnin eru í öllum spjöllum innan verkefnisins.

Spurningin: „Búðu til söluyfirlit með sölu eftir mánuðum, viðskiptavinum og vöruflokkum, topp 10 listum og samanburði milli ára“.
Claude kallar á Völu, tekur saman niðurstöðurnar og býr til mælaborð. Mælaborðið þarf leyfi til að nota Völu: This artifact uses connectors birtist, hafðu kveikt á vala og smelltu á Continue.
