Vala í ChatGPT

Vala.Nú í ChatGPT.

Tengdu ChatGPT við Business Central og spurðu á mannamáli. Vala sækir svörin beint úr ykkar eigin gögnum, rannsakar færslur og uppsetningu og skilar niðurstöðum sem þú getur treyst.

Eitt plugin með bæði tengingunni og sérþekkingunni. Engin lykilorð til að slá inn og engir útflutningar í Excel.

ChatGPT býr til söluyfirlit fyrir CRONUS IS með Völu

Vala AI fjölskyldan

Það sem þú færð með Völu í ChatGPT

Vala gefur ChatGPT örugga leið inn í Business Central, bæði til að lesa gögn og skrá þau, ásamt sérþekkingu á því hvernig gögnin eru byggð upp. Útkoman er hraðari og áreiðanlegri svör.

01

Eitt plugin, allt innifalið

Ein zip-skrá inniheldur bæði Vala MCP tenginguna og Vala Skills. Þú hleður henni upp einu sinni, tengist og þá er allt klárt.

02

Svör úr ykkar eigin gögnum

ChatGPT spyr Business Central beint, til dæmis um viðskiptamenn, birgja, vörur, bókhald og skjöl, í stað þess að giska eða gefa almenn svör.

03

Réttar tölur, ekki ágiskanir

Vala Skills kenna ChatGPT á Business Central: að nota reiknuð svæði (FlowFields), lesa formerki í fjárhag rétt og telja yfir allt gagnasafnið, ekki bara fyrstu línurnar.

Almennir eiginleikar Völu og öryggi eru á forsíðu Völu.

Skref 1 af 4

Öryggið fyrst

Áður en þú tengir ChatGPT við Business Central skaltu vita hvernig gögnin þín eru varin og hvar ábyrgðin liggur. Fyrir okkur hjá Rue de Net skiptir öllu máli að öryggið sé í lagi, og Vala er hönnuð með það að leiðarljósi.

Almennar öryggisreglur Völu, sem gilda um allar útgáfur, eru á forsíðu Völu. Hér er farið yfir það sem á sérstaklega við um ChatGPT.

Frá Business Central til ChatGPT

Á ábyrgð Völu og Business Central

Leiðin frá Business Central til ChatGPT er varin eins og lýst er á forsíðu Völu. Vala tryggir að þú sjáir aðeins það sem heimildasettin þín í Business Central leyfa, og að hún skrifi aðeins í þá hluta Business Central sem kerfisstjórinn ykkar hefur opnað fyrir henni.

Þegar gögnin eru komin til ChatGPT

Á ábyrgð ChatGPT leyfisins og OpenAI

Svörin sem Vala sækir verða hluti af samtalinu í ChatGPT. Hvernig farið er með þau þar, hve lengi þau eru geymd og hvort þau eru notuð á einhvern hátt, til dæmis til að þjálfa gervigreindarlíkön, fer eftir ChatGPT leyfinu sem þú notar og reglum OpenAI.

  • Einstaklingsleyfi (t.d. Free, Plus og Pro) falla undir notkunarskilmála OpenAI. Athugaðu stillingarnar undir Data Controls í ChatGPT.
  • Fyrirtækjaleyfi (t.d. Business og Enterprise) falla undir viðskiptaskilmála OpenAI og samninga ykkar við OpenAI.

Sjá líka persónuverndarstefnu OpenAI.

Samþykki kerfisstjóra

Kerfisstjóri samþykkir Völu fyrir ChatGPT

Vala er forrit sem er skráð í Microsoft Entra ID. Microsoft leyfir engu utanaðkomandi forriti að sækja gögn fyrirtækisins nema kerfisstjóri hafi samþykkt það fyrst. Þannig ákveður fyrirtækið sjálft hvaða kerfi mega tengjast gögnunum ykkar.

Samþykkið veitir Völu leyfi til að lesa og skrá Business Central gögn fyrir hönd innskráðs notanda, og aldrei umfram heimildir hans.

Án samþykkisins gengur þetta ekki. Notandinn kemst þá ekki í gegnum innskráninguna í skrefi 3.

Samþykkið má afturkalla hvenær sem er í Microsoft Entra admin center, undir Enterprise applications.

  • Slóð fyrir samþykki
    https://login.microsoftonline.com/<customer-tenant>/adminconsent?client_id=142d9afa-b708-43db-9924-b688d13b31faOpna

Settu öryggið á oddinn

Áður en þú heldur áfram

Við hvetjum þig til að kanna þessi mál vel áður en þú tengir ChatGPT við Business Central:

  • Hvaða ChatGPT leyfi notar þú, og hvað segja skilmálar OpenAI um geymslu og notkun gagna í því leyfi?
  • Eru heimildasettin í Business Central rétt? Vala sér nákvæmlega það sem notandinn sér, hvorki meira né minna.
  • Hver hjá ykkur samþykkir Völu og ber ábyrgð á aðgangi að henni?
  • Vita öryggisstjóri og persónuverndarfulltrúi af notkuninni og eru þeir sáttir við hana?

Ef spurningar vakna erum við til staðar. Hafðu samband og við förum yfir öryggismálin með þér og kerfisstjóranum ykkar.

Skref 2 af 4

Hladdu Vala plugin upp í ChatGPT

Hér hleðurðu Vala plugin upp í ChatGPT appið. Í því eru bæði Vala MCP tengingin og Vala Skills, svo ekkert þarf að setja upp sérstaklega.

Það sem þú þarft

Áður en þú byrjar

Uppsetningin tekur um fimm mínútur og þarf aðeins að gera einu sinni.

Appið Rue de Net Vala AI þarf að vera sett upp í því Business Central umhverfi sem þú ætlar að tala við. Án þess virkar Vala plugin ekki. Leiðbeiningar eru í uppsetningu Völu í BC.

Kerfisstjóri fyrirtækisins þarf að samþykkja Völu fyrir allt fyrirtækið (consent), sjá skref 1.

Hver notandi þarf að vera Business Central notandi með aðgang að gögnunum sem spurt er um.

  • ChatGPT
    ChatGPT appið fyrir Windows eða Mac, með aðgangi að plugins
  • App í Business Central
    Rue de Net Vala AI, sett upp í BC-umhverfinuLeiðbeiningar
  • Vala plugin
    vala-chatgpt-plugin.zipSækja
  • Vala MCP slóð (til upplýsingar)
    https://api-dev.ruedenet.net/aiconsultantmcp/mcp
  • Innskráning
    Microsoft Entra ID, með sama vinnureikningi og í Business Central
1

Opnaðu ChatGPT

Opnaðu ChatGPT appið. Plugins eru undir Customize í valmyndinni vinstra megin.

Upphafssíða ChatGPT appsins
2

Customize og Upload plugin archive

Veldu Plugins undir Customize, smelltu á Add efst til hægri og svo á Upload plugin archive.

Plugins, Add og Upload plugin archive
3

Veldu plugin-skrána

Veldu vala-chatgpt-plugin.zip.

Aðeins zip-skráin er valin. Vala Skills eru þegar inni í henni.

vala-chatgpt-plugin.zip í möppu
4

Add plugin

Glugginn New Plugin sýnir skrána sem þú valdir. Smelltu á Add plugin.

New Plugin glugginn með vala-chatgpt-plugin.zip
5

Vala er komin inn

Síða Völu opnast og sýnir hvað er í pluginu: MCP þjóninn Vala-mcp og fjögur Vala Skills, sem ChatGPT notar sjálfkrafa þegar þú spyrð um Business Central:

  • vala-bc-investigation: grunnurinn að Business Central
  • vala-bc-totals: samtölur, talningar og röðun
  • vala-bc-financials: fjárhagur, afkoma og formerki
  • vala-bc-sales-inventory: sala, innkaup og birgðir
Síða Völu í ChatGPT með Vala-mcp og Vala Skills

Skref 3 af 4

Settu Völu upp og tengdu við Business Central

Nú seturðu Völu upp og skráir þig inn einu sinni með Microsoft-vinnureikningnum þínum.

1

Farðu í Personal

Undir Plugins er kominn nýr flipi, Personal. Smelltu á hann.

Plugins með flipunum Public og Personal
2

Vala undir Created by you

Vala birtist undir Created by you, en er ekki enn uppsett.

Vala undir Created by you
3

Settu Völu upp

Smelltu á + við hliðina á Völu til að setja hana upp.

Plús-hnappurinn við Völu
4

Skráðu þig inn með Microsoft

Vafri opnast. Veldu vinnureikninginn þinn, sama reikning og þú notar í Business Central.

Ef beðið er um samþykki hefur kerfisstjóri ekki enn samþykkt Völu. Sjá skref 1.

Vala nær aðeins sambandi við Business Central umhverfi þar sem appið Rue de Net Vala AI er sett upp. Sjá Áður en þú byrjar.

Microsoft innskráning, veldu reikning
5

Innskráningu lokið

Þegar Authentication complete birtist má loka vafraflipanum og fara aftur í ChatGPT.

Authentication complete í vafra
6

Vala er uppsett

Skilaboðin Vala plugin installed birtast og Vala er komin undir Installed vinstra megin. Smelltu á Try now til að prófa.

Vala plugin installed

Skref 4 af 4

Prófaðu Völu í ChatGPT

Búðu til verkefni fyrir Business Central umhverfið þitt og spurðu fyrstu spurningarinnar.

1

Segðu ChatGPT hvar gögnin eru

Búðu til verkefni undir Projects, til dæmis BC SaaS. Opnaðu Project settings og settu þrjár línur í Instructions:

Tenant = <tenant ID>
Environment = Production
Company = <nafn fyrirtækis>
  • Tenant: tenant ID eða lén fyrirtækisins, til dæmis fyrirtaeki.onmicrosoft.com
  • Environment: umhverfið, til dæmis Production
  • Company: fyrirtækið, eins og það heitir í Business Central

Þá þarftu ekki að gefa þessar upplýsingar upp í hverri spurningu.

Project settings með Tenant, Environment og Company í Instructions
2

Spurðu

Spurðu í verkefninu, til dæmis: „Can you give me the top 5 customers and some insights?“ eða „Hverjir eru 5 stærstu viðskiptavinirnir og hvað má lesa úr því?“

ChatGPT kallar á Völu og skilar töflu yfir 5 stærstu viðskiptavinina, með sölu og fjölda reikninga, ásamt helstu niðurstöðum.

Ef þú tilgreinir ekki tímabil segir ChatGPT hvaða tímabil var notað, hér alla sögu fyrirtækisins.

ChatGPT sýnir 5 stærstu viðskiptavinina og greiningu með Völu
3

Biddu um mælaborð

Haltu áfram, til dæmis: „Búðu til söluyfirlit með sölu eftir mánuðum, viðskiptavinum og vöruflokkum, topp 10 listum og samanburði milli ára“.

ChatGPT sækir gögnin með Völu og býr til gagnvirkt mælaborð sem opnast við hliðina á spjallinu. Árinu í súluritinu má breyta.

Mælaborðið sýnir líka hversu ný gögnin eru, hér Data through Jan 28, 2025.

Söluyfirlit fyrir CRONUS IS sem ChatGPT bjó til með Völu